Velkomin í mína veröld
Ég heiti Gunnlaugur Páll og er 8 ára gutti
Ég fæddist 18. Júní 2003 kl 07:31 og var á hraðferð. Ég var nú ekki stór í vexti 51 cm og 3275gr. Ég er voða indæll strákur en á það samt til að prakkarast svolítið. Mér finnst rosalega gaman að leika mér að bílum og boltum, einnig er stórskemmtilegt að slá gólfkúlur. Ég er að æfa fóltbolta og finnst það frábært. Mamma mín heitir Svana og pabbi minn heitir Einar og það segja margir að ég sé svolítið líkur honum pabba mínum. Ég á eina litla systir sem heitir Marta Björg og hún fæddist 3. Maí 2005. Ég er voða góður við hana þó að ég eigi til að stríða henni smá.
Við ætlum að vera dugleg að skrifa inní vefdagbókina svo að vinir og fjölskylda geti fylgst vel með mér og með systir minni líka. Endilega kíkjið í gestabókina og kvittið þar, gaman að sjá hverjir koma og kíkja á okkur.
TVÍBURAR
21.maí - 21.júní
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.